|
|
27.11.2006 23:35:38 / siggi
Ég hata
blog.central.is síður. Kannski er það af því að ég var að
reyna að segja skoðun mína á einni slíkri um daginn, sem gekk
ekki fyrr en í 24. tilraun (já, ég taldi), af því að
staðfestingarkóðinn  var "vitlaus". Ég er því búinn að
segja skilið við síður sem ekkert vilja sýna manni nema:
Villa i stadfestingarkoda,
sladu inn thad sem birtist a myndinni, ef hun er oskyr yttu
tha a F5. Annar gríðarlegur ókostur er að geta ekki
notað eldrefsvafrann til að setja inn færslur á þetta
ömurlega kerfi sem er hér við lýði.
Niðurstaðan er sú að ég er hættur að nota þessa síðu og ef ég nenni
einhverntíma að blogga aftur þá verður það á: http://www.siggioskar.bloggar.is.
»
08.11.2006 18:26:30 / siggi

Það er náttúrulega alveg ótrúlegt hversu mikið er búið að
"nauðga" hugtakinu jól síðastliðin ár. í gærkvöldi fór ég
t.d. á bensínstöð að taka bensín. Þegar ég keyrði fram hjá
Kringlunni var mér litið í átt að henni, og viti menn, það er búið
að setja upp heljarinnar helling af jólaljósum á bílastæðunum þar,
og nóvember varla byrjaður. Ég held að þessi síða þessi síða:
http://atli.askja.org/jol/ segi
allt sem segja þarf. Þar er meira að segja svartur listi yfir
fyrirtæki sem skorað er á mann að sniðganga vegna þess hversu
gegnumsýrð þau eru af græðgi og jólatilboðum.
Í dag snjóaði í henni Reykjavík. Það varð þess valdandi að
ég fór á hjóli í skólann og skyldi minn elskulega bíl eftir
heima við. Það hefði ég betur látið ógert, því 5 mínútum áður
en ég kom heim að bílnum, hafði einhver óprúttinn bílastæðavörður
séð eitthvað athugavert við það hvernig honum var lagt og var því
frekar óglæsilegur miði á framrúðunni þegar ég kom að honum.
Þessi umræddi bílastæðavörður er nú eftirlýstur og hver sá sem gæti
hafa séð mann með stórt P framan á sér og derhúfu á gatnamótum
Ásvallagötu og Blómvallagötu um klukkan 14:05 í dag, vinsamlegast
láti mig vita svo ég geti hengt þennan froðusnakk upp í snúrustaur
á hásinunum. Fundarlaun í boði í formi einnar
súkkulaðirúsínu.
Í öðrum fréttum er það helst að hún móðir mín dvelur þessa
dagana í borg englanna á vesturströnd Bandaríkjanna. Hún fór
meira að segja til Hollywood í fyrradag og sá, viti menn, engan
frægan. Hún missti reyndar af miklu tækifæri til að vera í
salnum hjá Jay Leno og sjá Goran Visnjic, (betur þekktur sem
Júgóslavinn í Bráðavaktinni). Ég þarf svo að sækja hana á
Keflavíkurflugvöll klukkan 6 á sunnudagsmorguninn næsta. Það
verður gaman að vakna þá, ætli það taki því nokkuð að fara að
sofa?
Síðustu helgi fór ég heim, (og þá meina ég heim). Þar var
ýmislegt brallað, og þá sérstaklega á laugardagskvöldið þar sem
lokahóf Dýnamó Hafnar var haldið. Það þótti takast með miklum
ágætum og ég var meira að segja valinn leikmaður ársins í
aukahlutverki. Ég hlaut fyrir það málverk nokkuð af brotnum
brúnum blómavasa sem stendur á einhverjum fleti. Í vasanum
eru fjólublá blóm. Bakgrunnurinn er svartur. Undir er
skrifað LDFL, en ekki veit ég hver það er. Við afhendinguna
var mér sagt að þetta væri undirskrift franska listmálarans
Lavelle, en hvort það er satt, veit ég ekki.
Þá enda ég þetta eins og Óli Tynes í útvarpsfréttum á
Bylgjunni:
Og þá er ekki meira að sinni, verið þið sæl.
»
30.10.2006 23:21:33 / siggi
Það er alveg merkilegt hvað skólastig virðast eiga það til að
vera lík. Það hljómar kannski furðulega, en háskóli og
leikskóli eiga kannski mun meira sameiginlegt heldur en margan
grunar. Þannig er mál með vexti, að það sem af er vetri, hef
ég bæði verið mikið að lita, og passa mig sérstaklega að lita ekki
útfyrir, og þó er sérstaklega merkilegt að ég hef mikið verið að
drullumalla upp á síðkastið. Ég veit ekki með samnemendur
mína, en ekki bjóst ég við því, að þegar ég færi í háskóla, myndi
ég stunda það mikið, bæði að lita og drullumalla. Það sem
meira er, um daginn vorum við meira að segja látin baka
drulluköku. Ekki er allt búið enn, (þessu trúið þið aldrei),
kennarinn smakkaði meira að segja á drullukökunni sem við vorum
nýbúin að baka og þótti hún meira að segja góð!!!
Ég held að ég láti þetta duga í bili.
E.s. Það er gjörsamlega ómögulegt að skrifa langar færslur í
Firefox vafranum.
»
24.10.2006 01:46:51 / siggi
Einhverra hluta vegna datt mér í hug að skrifa einhvern
óskunda hér á þessa margblessuðu síðu mína. Tilefnið er
sennilega bara það að hálft á er liðið síðan Björgvin bætti metið
hans Sigurgeirs í tímaeyðslu, en það er það síðasta sem greint var
frá á þessari síðu.
Margt hefur gerst síðan þá. Þann 20. maí útskrifaðist ég úr
FAS, ásamt 15 öðrum bráðgáfulegum einstaklingum. Fimm dögum
síðar fór ég með dágóðum hluta þess fólks til Búlgaríu í
útskriftarferð. Það var nú meiri ferðin og hef ég nú svarið
þess dýran eið að stíga aldrei fæti aftur í það spillingarbæli, svo
lengi sem ég lifi.
Ítalir urðu heimsmeistarar í knattspyrnu, eftir frækinn sigur á
eina liðinu sem mögulega gat unnið þetta mót í undanúrslitum.
Þar með sannast máltækið, " Til
þess að geta verið sigurvegari, verður maður að vinna
sigurvegarann." Klose var nú samt
markakóngurinn, sem var aðeins bót í máli.
Eftir Búlgaríuferðina fór ég í fermingu hjá stórskrítnum frænda
mínum á Reyðarfirði. Skrítnari var þó presturinn sem fermdi
hann. Sérstaklega þegar hann tók upp á því að syngja "Áfram
Kristmenn, krossmenn..." með þvílíkri raust að rúðurnar í kirkjunni
skulfu og Guðshúsið nötraði eins og jarðskjálfti hefði riðið yfir
Austfirðina, en þeir eru nú ekki tíðir þar um slóðir.
Strax í vikunni þar á eftir fór ég að vinna sem "bögglaberi" hjá
Íslandspósti. Það magnaðasta við það starf var að fara með
risastóran gervihnattamóttakara á ónefnt hótel í Nesjunum.
Það hafði nefnilega einhver ókunnugur íslenskri málstefnu ritað
"ATH, DIZKAR" á umbúðirnar utanum diskinn og vakti það mikla kátínu
meðal starfsfólks póstsins.
Dýnamó Höfn gekk mun betur í sumar heldur en árið áður, fengu 12
stig, sem er tólfföldun á stigameti síðasta árs. Þess má til
gamans geta að ég kom við sögu í öllum leikjunum, þó mínúturnar
hafi nú alls ekki verið margar. Reyndar tókst mér að leggja
upp mark í 6-1 tapi á Djúpavogi, en það er nú önnur saga sem ég
ætla ekki að segja hér.
Þetta sumar, sem og allt árið á undan, vann ég einnig sem
flatbökuútkeyrslumaður á Hótel Höfn. Þar hætti ég svo þann
17. ágúst eftir farsælt 16 mánaða starf, allavega má segja að ég
hafi farið á hina ótrúlegustu staði með flatbökur.
Einhverntíma í kringum 23. ágúst hleypti ég loks heimdraganum og
settist að í kjallaranum í húsi skáldsins á Ásvallagötunni.
Þar ligg ég núna og skrifa þennan ófögnuð.
Ástæðan fyrir þessum búferlaflutningum er sú að nú legg ég stund á
nám við háskóla þann er kenndur er við landið okkar gamla og
góða. Sæki ég þar námskeið sem kennd eru innan jarð- og
landfræðiskorar, og nefnist námsleiðin landfræði. Já, takið
eftir, landfræði, ekki landAfræði. Þetta ku vera vegna þess
að þegar maður er búinn að læra fræðin, þá hljómar mun betur að
vera landfræðingur, heldur en landAfræðingur. Finnst ykkur
ekki?
Ég veit svei mér þá ekki hvað ég á að segja meira nema þó það að
það myndi koma mér virkilega á óvart ef einhverjir myndu segja
einhverja skoðun á þessari færslu, því ég reikna ekki með því að
vera neitt að auglýsa þennan bloggáhuga minn allt í einu.
Kveðja
Sigurður Jónsson, landfræðingur (það myndi hljóma vel í
símaskránni. finnst ykkur ekki?)
E.S. ef ykkur dettur allt í einu í hug að blogga, og klukkan er
orðin svona margt, þá ættuð þið nú frekar að fara að sofa en að
standa í þessari vitleysu.
»
24.10.2006 01:07:08 / siggi
eða, jú kannski!
»
24.10.2006 01:05:39 / siggi
Ætti ég að nenna að byrja að blogga aftur???
Nei, ég held ekki.
»
16.04.2006 23:40:34 / siggi
Og meðan ég man, Björgvin er búinn að bæta metið hans Sigurgeirs
sem talað var um í síðustu færslu. Ég nenni hins vegar ekki
að tala meira um það vegna þess hversu miklu púðri ég eyddi í að
skrifa um metið hans Sigurgeirs.
»
23.03.2006 16:08:24 / siggi
Þetta hefur verið mjög merkilegur dagur fyrir margra hluta
sakir. Hann byrjaði
á svipuðum nótum og flestir fimmtudagar nú á vorönninni, á
náttúrufræði hjá Björgvini. Á eftir fylgdu landafræði hjá
Eyjólfi og saga hjá Sigurgeiri. En þá fóru nú heldur betur
merkilegir hlutir að gerast.
Klukkan 11:25 átti að hefjast tími í fjölmiðlafræði
303. Ekki var
kennarinn, (sem að þessu sinni var Sigurgeir), skipulagðari en svo
að það tók hann heilar 12 mínútur að byrja tímann.
Á þessum tólf
mínútum var hann ýmist að ná í tölvuna sína fram á
kennarastofu eða jafnvel að ná sér í kaffibolla, (sem var
reyndar sá skítugasti sem ég hef lengi séð). Að þessum 12 mínútum loknum
hófst loksins tíminn, en þá var klukkan, (fyrir þá sem eru
ekkert sérstaklega góðir í samlagningu), orðin 11:37.
Þá hóf hann upp
raust sína og rökræddi um heima og geima við nemendurna í 11
mínútur, eða til klukkan 11:48, þegar hann hleypti okkur
skyndilega út.
Þetta finnst mér alveg stórmerkilegt, alltsvo vegna þess að
það tók lengri tíma að hefja tímann (12 mínútur), heldur en tíminn
varð svo alls (11 mínútur). Þetta tel ég vera heimsmet í
tímaeyðslu og ætla ég að senda bréf til stjórnenda Heimsmetabókar
Guinness um þetta mál, einfaldlega vegna þess að upprunalega átti
tíminn að vera klukkutími.
En
þá í aðra sálma. Eftir
hádegi, nánar tiltekið klukkan 13:00, fór ég í frekar tíðindalausan
stjórnmálafræðitíma. Tíminn í gær var hins vegar mun
tíðindameiri. Þar fór
kennarinn bókstaflega á kostum, þegar hún notaði orðin “argaþras”
og “lýðskrum” í sömu setningunni. Þess ber að geta að hún hefur
vægast sagt ekki verið dugleg að nota íslensk orð yfir hluti í
þessari kennslu sinni og á hún því hrós fyrir þessa mögnuðu
setningu sem þarna fékk að fljúga.
En
aftur að deginum í dag. Núna rétt í þessu gerði ég alveg
magnaðan hlut. Ég
skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn. Ég vil þó minna áhyggjufulla
ættingja mína á það að það er prófkjör í vændum fyrir væntanlegar
sveitarstjórnarkosningar svo ég taldi tilvalið að skrá mig í hann
svo ég gæti nú tekið þátt í því prófkjöri. “Áfram Albert”
Það sem er svo á dagskrá það sem eftir er af deginum er að
reyna að ljúka við náttúrufræðiskýrslu og jafnvel eitthvað
fleira.
Enda ég þetta á örstuttum kviðlingi.
Heimsmet hefur verið sett.
Hvað er nú að heyra?
Metið mun þó þykja nett,
en
magnþrungið hjá Geira.
»
05.02.2006 20:01:31 / siggi
Nýlegar myndbirtingar Jyllandsposten, þar sem “grín” er
gert að Múhameð spámanni, fara mikið í brjóstið á múslimum
heimsins. Það mátti
svosem búast við mikilli gagnrýni múslima á Jótlandspóstinum, en
fyrr má nú aldeilis fyrrvera. Þeir eru farnir að kveikja í
sendiráðum Dana í Arabalöndum og hvetja landa sína til að
sniðganga danskar vörur. Þeir leggjast meira að segja
svo lágt að brenna danska fánan í miklum múgæsingum víðsvegar í
Arabalöndunum.
Hvað er eiginlega málið? Skilja þeir ekki neitt?
Danmörk, eða danska
ríkisstjórnin, hefur hvorki gert þeim eitt né neitt.
Það er
JYLLANDSPÓSTEN og ekkert annað sem á að kenna um þetta, en
einhverra hluta vegna hafa þeir snúist gegn öllum hinum
vestræna heimi.
Og
ég sem hélt að Arabaheimurinn væri að reyna að bæta ímynd sína
eftir 11. september. Sveiattan.
---
Forkeppnin fyrir Eurovision er einhver sú glataðasta frá
upphafi, leiðinleg lög hægri, vinstri og ekki eru nú kynnarnir
betri. Hvað er Garðar
Thor Cortes eiginlega að gera í sjónvarpi?
---
Ég
ætlaði að reyna að minnast ekkert á Silvíu Nótt í þessari færslu,
en því miður er ekki annað hægt. Meiri skömm fyrir íslensku þjóðina
hefur ekki komið fram síðan Gamli Sáttmáli var undirritaður árið
1262. Í ljósi þess að
stjórnarandstaðan er alltaf að segja mönnum að segja af sér þó þeir
geri ekki neitt, þá verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum með
stjórnarandstöðuna fyrir að vera ekki farin að hvetja Pál
Magnússon, útvarpsstjóra, til að segja af sér fyrir að hafa leyft
þessum guðsvolaða svindlara að vera með í þessari
keppni.
---
Á gleðilegri nótum vil ég óska íslenska
landsliðinu í handbolta innilega til hamingju með þennan glæsilega
árangur á Evrópumótinu í Sviss, og þá sérstaklega Ólafi Stefánssyni
með að hafa verið valinn besta hægri skyttan á mótinu.
Svo skora ég á
Viggó að endurskoða hug sinn með að hætta með landsliðinu og
halda áfram á þessari góðu braut sem það er á.
---
Ég, ásamt fleirum, á svo von á heimsókn þann 17.
þessa mánaðar frá Ungverjalandi. Björn bróðir minn er búinn að
valda Gísla bróður mínum miklum áhyggjum vegna mikillar
Ungverjalyktar sem hann heldur fram að verði óútloftanleg hér á
bæ. Það er ekki öll vitleysan
eins.
---
En
ætli það borgi sig ekki að hætta þessu í bili svo einhver nenni nú
að lesa þessi ósköp. Ég vona bara að ykkur ofbjóði ekki
þessi pistill.
»
25.01.2006 13:30:14 / siggi

The Completely Pointless Personality Quiz
Prófið þið þetta. Þetta er algjörlega tilgangslaust.
»
06.01.2006 16:37:37 / siggi
Jæja, þá er skólinn byrjaður enn eina ferðina, en vonandi þó í
síðasta skiptið, allavega er ég búinn að borga skráningargjaldið á
útskriftarferðinni.
Flest er eins og það er vant að vera í skólanum þessa önnina, þó
ber það helst til tíðinda að Sigurgeir virðist vera óvenju
skipulagður þessa dagana, en eins og hann sagði sjálfur er allt
breytingum háð.
Auri er ósköp ósýnileg í mínum augum, enda í fyrsta sinn í
sögu minni í þessum annars ágæta skóla sem ég er ekki í neinum
tímum hjá henni. *hóst*sem er reyndar alveg
ynidslegt*hóst*
Ég er ekki í nema svona 9 áföngum þessa önnina sem er reyndar
alveg yfirdrifið nóg. Þar af eru 4 fjarnámsáfangar,
bókfærsla 103 og íslenska 603 héðan, íslenska 633 einhversstaðar
frá og félagsfræði 203 frá Akureyri.
Því miður gefst mér ekki tími til að skrifa meira í þetta
skiptið, svo ég lýk þessu með því að minna á síðbúna
þrettándabrennu, svokallaða "fjórtánda"brennu annað kvöld.
Henni var frestað vegna óhagstæðra viðurskilyrða. Eldur
verður borinn að stæðunni kl. 20:30 og mæli ég með því að menn hafi
með sér reykköfunarbúnað því það er nánast ekkert í henni nema
fúaspýtur.
»
28.12.2005 01:23:29 / siggi
Vegna gífurlegs fjölda áskorana
hef ég ákveðið að gera heiðarlega tilraun við að skrifa
einhverjar línur hér inná þessa þrælmögnuðu síðu. Þær
áskoranir hafa borist úr mörgum áttum og misjafnlega langt
að, allt frá Hoffelli út á Höfn og frá Sauðárkróki til Árósa
í Danmörku, þannig að það má segja að þær komi víða
að.
Ein áskorunin
hljómaði svona á síðu Sigfinns frá Hoffelli:
"Þá er þetta
helvítis kytl búið...jesús!! En ég ætla að kýtla
Sigurð Óskar Jónsson, Nönnu Halldóru Imsland og Klemma
Mór."
Ætli maður verði
ekki að taka þeirri áskorun svo hann láti mig einhverntíma í
friði.
Fimm hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Fara í heimsreisu
- Skrifa bók
- Útskrifast úr Framhaldsskóla
- Vinna í lottóinu
- Gefa út ljóðabók
Fimm hlutir sem ég get:
- Keyrt bíl (atvinnubílstjóri)
- Samið ljóð (frekar óregluleg þó)
- Lagað ýmsa hluti
- Beitt rökhugsun við ýmis vandamál
- Pússlað
Fimm hlutir sem ég get ekki:
- Drukkið mjólk úr plastglasi
- Skúrað gólf
- Fengið fólk til að hlusta á mig
- Lagt í fleiri en eitt stæði í einu.
- Sleppt því að gefa stefnuljós þar sem það á að gera það.
Fimm uppáhalds frægar persónur sem heilla mig:
- Guðni Ágústsson
- Roy Keane
- Sigfús Sigurðsson
- Guðjón Valur Sigurðsson
- Peter Schmeicel
Fimm orð/setningar sem ég segi oft:
- Andskotans
- Helvítis
- Djöfull
- Jeminn einasti
- Jahá
Fimm hlutir sem ég sá í gær:
- Fullt af fullu fólki
- Slagsmál
- Dósir
- Brjáluð naut
- Húsið mitt
Þá er þessu rugli
lokið og dettur mér því í hug að minnast á könnunina sem búin er að
vera í gangi síðan þessi síða var síðast uppfærð. Hún
hljóðar svona:
Svo virðist vera
að helmingi kjósenda, sem voru um 30 talsins, finnist það vera
viðurstyggilegt að nota skó af þessari stærðargráðu. Ég gef
nú lítið fyrir úrslit þessarar könnunnar og held ótrauður áfram að
nota slíka skó því annars myndi ég sennilega þurfa að ganga um
annaðhvort berfættur eða á sokkunum, og varla viljið þið
það.
En nú læt ég
þessari færslu lokið og vona að einhver lesi þetta nú fyrst ég
nennti nú að vera að þessu.
læt fylgja einn stuttan kviðling með:
Áskoranir ósköp margar,
um að núna vanti grein.
Fólkið yfir þessu argar,
gleðst að nú sé komin ein.
E.S.
Ég gleymdi víst að ég á víst að kítla einhvern. Ég hef
ekki hugmynd um hver það ætti að vera svo ég ætla bara að gerast
svo róttækur að kítla alla sem koma á þessa síðu í náinni
framtíð. Þess má líka til gamans geta að á morgun eru einmitt
liðnir 7 mánuðir síðan þessi síða var síðast uppfærð.
»
29.05.2005 15:25:48 / siggi
Ég var að horfa á Formúlu 1 í morgun, sem væri ekki frásögu
færandi nema vegna þess að þegar ég sá sigurvegarann, sem að þessu
sinni var Fernando Alonso, varð mér það ljóst að hann væri alls
ekki ósvipaður Pétri Jóhanni Sigfússyni, sem hefur verið að gera
garðinn frægann í Strákunum á Stöð 2.

Alonso Sigfússon
»
27.05.2005 00:59:28 / siggi
Undanfarnar vikur hef ég verið einkar latur við að skrifa
eitthvað á þessa síðu. Ástæðan er sennilega einna helst
ritstífla. Sú ritstífla virðist vera enn að grassera í mér
enda hef ég í rauninni ekki hugmynd um hvað ég ætti að
skrifa. Þess vegna hef ég ákveðið að segja frá könnuninni sem
hefur verið aðgengileg á síðunni undanfarnar vikur. Einhvern
veginn datt mér í hug að gera könnun um hvert væri besta
nammið. 34 atkvæði voru greidd en maður kemst ekki hjá því að
spyrja sig frá hversu mörgum einstaklingum þau hafi komið.
Hlaupbangsar urðu þó hlutskarpastir en að mér hvíslaði lítill fugl
að einn og sami maðurinn hafi greitt því góðgæti a.m.k. 10 atkvæði,
en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, enda fékk ég þetta
frítt. Hér eru niðurstöðurnar.
»
02.05.2005 00:28:13 / siggi
Það er staðfest. Það sem menn hafa verið að velta fyrir
sér frá örófi alda er loksins komið á hreint. Fyrir þá
sem ekki vita um hvað ég er að tala sjá vonandi eftir að hafa ekki
horft á Silfur Egils sunnudaginn 1. maí. Nú ætla ég að
útskýra hvernig í pottinn er búið.
Egill Helgason hafði boðið fulltrúm fjögurra stærstu
stjórnmálaflokka landsins til umræðunnar. Þeir voru: Margrét
Frímannsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, Hjálmar Árnason,
fulltrúi Framsóknarflokksins, Björn Bjarnason, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi
Vinstri-grænna.
Þessir annars ágætu aðilar voru að ræða um ýmislegt varðandi
þingið og störf þess á því þingi sem senn er að ljúka.
Eitthvað fór fyrrnefndu fulltrúi Framsóknarmanna að ræða um Ögmund
Jónasson, þingflokksformann Vinstri-grænna. Þá kom
reiðarslagið. Flokksbróðir Ögmundar, fyrrnefndur Steingrímur
lét eftirfarandi orð falla: "Félagi Ögmundur..."
Þetta kom eins og köld vatnsgusa framan í mig, þar sem ég var alveg
að sofna út frá þessu og fór ég að hugsa um allar kvikmyndirnar sem
ég hafði séð þar sem rússneski eða sovéski herinn hafði verið
einhver hluti af myndinni. Þar var, og er, oft notað orðið
Komrad, sem útleggst á ensku comrade. Samkvæmt
Ensk-íslenskri/íslenskri-enskri orðabók orðabókarútgáfunnar þýðir
það orð (flokks)félagi.
Nú lagði ég saman tvo og tvo og hugsaði, hvort að Vinstri
hreyfingin, grænt framboð, gæti í raun verið afsprengi
gamla kommúnistaflokksins íslenska og tæki jafnvel við
skipunum frá yfirboðurum í Moskvu.
Ég vona að enginn komist að þessari samsæriskenningu minni en
til öryggis ætla ég að láta lítið fara fyrir mér næstu daga.
Sjáumst, kannski.
»
Síður: 1 2
|
|